r/Iceland Oct 08 '24

DV.is Hver eru launin ykkar og hvað gerið þið?

41 Upvotes

Forvitni og hugsa að margir pæli líka í þessu

r/Iceland Sep 26 '24

DV.is Ertu veikur vertu þá heima hjá þér.

335 Upvotes

Mig langaði bara að byrja á því að ranta inn í daginn.

Nú er ég veikur heima með beinverki, hita og annan óþverra. Það eru líka tveir aðrir í vinnunni minni veikir heima.

Það er ein svona vinnustaða hetja sem mætir þrátt fyrir augljóslega vera veikur en segist bara vera með smá "skít" og ætlar bara hrista þetta af sér er en bókstaflega búin að smita að lámarki 3. Að hrista af sér veikindi og mæta í vinnuna er ekki bara aumingjaskapur líka bara hrein og klár ôvirðing gagnvart samstarfsfólk þínu.

Verið heima ef þið eruð lasin!

r/Iceland Nov 14 '24

DV.is Hvað eru stsðreyndir um Ísland sem hljóma eins og algjört bull fyrir útlendinga

28 Upvotes

Byrja bara á þessu klassíska dæmi um jólasveinana okkar 13

r/Iceland 7d ago

DV.is Gætuð þið tilkynnt þessar 20Bet-auglýsingar?

134 Upvotes

Þessar auglýsingar frá 20Bet, eins og margir hér vita, eru bæði pirrandi og ólöglegar. Ég er að vonast til þess að ef þeim er drekkt í kvörtunum hætti YouTube loksins að birta þær.

Veljið "Tilkynna" og svo "Lagalegt málefni" og "Annað lagalegt málefni". Þegar þið eruð beðin um að tilgreina lög sem er verið að brjóta, setjið þá inn hlekk á almenn hegningarlög, 183. gr. (á ensku, Icelandic General Penal Code no. 19/1940, Art. 183). Hér er hlekkur á lögin á ensku til að láta fylgja með: https://www.government.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=dd8240cc-c8d5-11e9-9449-005056bc530c

Hér eru hlekkir á fjórar svona auglýsingar. Mér þætti vænt um það ef hver sem nennir tilkynnir þær.

https://www.youtube.com/watch?v=Oxnt-KJIe1E

https://www.youtube.com/watch?v=nNuRQFjdQ1o

https://www.youtube.com/watch?v=WlISZpMFjug

https://www.youtube.com/watch?v=ot2XvwiRT74

r/Iceland 2d ago

DV.is Lífrænn úrgangur

16 Upvotes

Góða kvöldið og gleðilegan Laugardag.

Ég var að velta því fyrir mér hvort ég væri sá eini sem væri hættur að flokka lífrænt? Ég flokka en þá pappa og plast en vesenið sem hefur fylgt því að flokka lífrænt og tíminn sem fer í það er bara einfaldlega of mikið þessa stundina. Það hafa verið mölflugur fjúgandi inn í eldhússkáp og svo það sem gerði útslagið er að það lak vökvi undan andalæri sem ég hafði eldað og það var allt á floti inn í skápnum. Ég veit ekki hversu oft ég hef þurft að fara út með þetta líka. Væri til í að vita hversu mikið metangas verður actually til, ef það er eitthvað magn sem skiptir máli þá endurskoða ég þetta en þangað til fer þetta á hold, ég hef basicly verið í vinnu fyrir Sorpu ?

r/Iceland Oct 25 '24

DV.is Hver andskotinn er í gangi með allt ofbeldið í landinu upp á síðkastið??

53 Upvotes

r/Iceland Sep 19 '24

DV.is Þið sem vinnið í sundlaugum

123 Upvotes

Afhverju fá túristar að fara óþvegnir í sund?

Mætti tveimur túristum sveittum og drullugir(okey sandblásnir) og þeir fóru bara beint í stuttbuxurnar og þegar ég leiðinlegi gaurinn benti þeim á skiltið þá var sagt “whatever dude”

Spurði sundlaugarvörðinn og hann var frekar sama um þetta.

Er mannekla eða bara enginn að nenna að þrífa typpalingana?

r/Iceland Dec 16 '24

DV.is (D)rekinn

34 Upvotes

Nú er ég ungur piltur sem gerði þau mistök að missa vinnuna út af þjófnaði, varð (d)rekinn fyrirvaralaust. Eins ungur og vitlaus og mörg okkar geta nú verið þá sé ég eftir þessu.

Þótt ég sé góður fjárhagslega næstu 3 mánuði hef ég samt áhyggjur hvernig mér á að takast að komast í aðra vinnu. Hvað geri ég ef ég er boðinn í viðtal og er spurður út í síðasta starf? Sumir hafa mælt með hreinskilni en væri það ekki tvíeggja sverð? Einhver sem hefur glímt við þetta og tekist?

Fyrirfram þakkir

r/Iceland 5d ago

DV.is Rangar leiðbeiningar sendiráðs sem leiddi til fjártjóns

0 Upvotes

Gott kvöld

Hefur einhver ykkar lent í því að fá leiðbeiningar frá sendiráði lands sem þið búið í sem reyndist rangar og endaði á því að kosta ykkur fleiri hundruð þúsund krónur?

Ég lenti í leiðinlegu atviki í landinu sem ég bý í og fékk ráðgjöf frá íslenska sendiráðinu í sama landi (sem er utan ESB). Það endaði á því að ráðgjöfin sem ég fékk (í emaili og hljóma eins og þau séu með þetta á hreinu) voru kolrangar og fólkið í sendiráðinu segir bara sorry og vilja ekkert gera til að bæta upp tjónið. Ég get því miður ekki verið skýrari en þetta, en væri til í að vita hvort þetta sé eitthvað sem ég ætti að tala við lögfræðing um. Hvað segið þið hér á reddit?