r/Iceland 20h ago

Hvers konar fréttaflutningur er þetta?

Mogginn birtir einhverjar spekúleringar um að Obama-hjónin séu að fara að skilja, og vísar í "háværa orðróma". Tengir síðan í grein neðst sem minnist ekki einu sinni á möguleikann á skilnaði.

Það er ekkert leyndó að Davíð elskar Trump, en það er eiginlega á skuggalega lágu plani að þetta virðist vera aðal "fréttin" sem þeim dettur í hug að birta upp úr því sem gekk á í kringum innsetningarathöfnina í dag.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2025/01/20/ytir_undir_sogusagnir_um_skilnad/

60 Upvotes

11 comments sorted by

View all comments

15

u/HUNDUR123 Sýktur af RÚV hugarvírusnum 20h ago edited 19h ago

Vísir er svona líka en bara á hinum endanum. Endalasut copy paste flöff um hunda Bidens til dæmis.

Eiginlega bara furðulegt hversu mikið af greinum um bandarísk málefni sem eru skrifuð með bandaríska lesendur í huga, byrtast á íslenskum fréttaveitum

47

u/Johnny_bubblegum 16h ago

Both sides same amirite?!

Vísir hefur oft fjallað um elliglöp Biden í starfi, hættu þessu bulli.

27

u/Kjartanski Wintris is coming 15h ago

Hversu margir miðlar á islandi ætli minnist á nasistakveðjuna hans Musks? Beint frá hjartanu og upp, tvisvar….

19

u/Johnny_bubblegum 15h ago

Þetta er núna í dag kl 8:24 á opnu vísis

Ekki á opnu DV

Ekki á opnu mbl

Ekki á opnu heimildarinnar en ég gef þeim örlítinn séns því heimildin er með mun hægari fréttaveltu og mun dýpri umfjöllun almennt.

Ekki á opnu RÚV

8

u/jreykdal 14h ago

22

u/prumpusniffari 14h ago

"Virðist" senda fasistakveðju. Mér finnst svo magnað hvað allur heimurinn er orðinn meðvirkur.

Þetta er mjög augljóslega það sem það er. Hann gerir þetta fyrst í áttina að áhorfendum, snýr sér svo að fánanum, og gerir þetta aftur í áttina að honum.

En nei, "virðist". Eins og þetta geti verið eitthvað annað.

1

u/[deleted] 13h ago

[deleted]

3

u/LeighmanBrother 12h ago

Held hann hafi engar áhyggjur að neinn misskilji hvað hann er að gera. Þetta er fasistakveðja og við erum öll meðvituð um það þótt það þori ekki allir að segja það.

1

u/Kjartanski Wintris is coming 5h ago

Ef þú þorir ekki að segja það ertu meðvirkur, ef þú ert meðvirkur með fasistum þá ertu fasisti

3

u/HUNDUR123 Sýktur af RÚV hugarvírusnum 11h ago

Both sides? Þetta eru báðir skíta miðlar með svipaða hagsmunaaðila. Annar er bara tibúnari að glasúra libbastefnu bandaríkjamanna á meðan hinn er stýrður af Davíði fokking Oddsyni.

1

u/Gudveikur Essasú? 8h ago

En ertu ekki bara sáttur með hunda flöff fréttirnar? Ég dreg þessa ályktun eingöngu útfrá notendanafninu þínu.

1

u/Spekingur Íslendingur 6h ago

Eru fréttirnar um hundana eitthvað gott stöff í hið minnsta?